Steinþór Freyr framlengir við KA

Steinþór Freyr Þorsteinsson. Mynd/Ka.is
Steinþór Freyr Þorsteinsson. Mynd/Ka.is

Knattspyrnudeild KA og Steinþór Freyr Þorsteinsson hafa gert eins árs framlengingu á samning sínum og því ljóst að Steinþór leikur með KA á næstu leiktíð. Frá þessu er greint á heimasíðu félagsins. „Þetta eru miklar gleðifregnir enda er Steinþór öflugur leikmaður og flottur karakter sem hefur komið sterkur inn í félagið,“ segir í tilkynningunni.

Steinþór lauk nýverið sínu fimmta tímabili með KA eftir að hafa komið frá Sandnes Ulf í Noregi fyrir sumarið 2017. Steinþór sem er 36 ára hefur leikið 76 leiki fyrir KA í deild og bikar og hefur í þeim gert fimm mörk. Heimasíðan greinir frá þeirri skemmtilegu tölfræði að KA hefur ekki tapað leik þegar Steinþór hefur komist á blað.

Steinþór er fæddur árið 1985 og er uppalinn hjá Breiðablik í Kópavogi þar sem hann hóf að leika með meistaraflokki aðeins 17 ára gamall. Árið 2009 gekk hann til liðs við Stjörnuna og sló þar í gegn og var valinn í A-landslið Íslands sama ár. Steinþór hefur leikið 8 landsleiki fyrir Ísland og fjölmarga yngri landsliðsleiki.

 


Athugasemdir

Nýjast