Skíðasvæðinu á Dalvík lokað vegna dóms

Frá Böggvistaðafjalli. Mynd/Skíðafélag Akureyrar
Frá Böggvistaðafjalli. Mynd/Skíðafélag Akureyrar

Stjórn Skíðafélags Dalvíkur tók þá ákvörðun á stjórnarfundi í gærkvöld að loka skíðasvæðinu í Böggvisstaðafjalli um óákveðin tíma frá og með deginum í dag, þriðjudeginum 4. apríl. Ákvörðunin var tekin í kjölfar dóms Héraðsdóms Norðurlands Eystra þar sem félaginu er gert að greiða skíðakonu rúmar 7.7 miljónir, auk vaxta og málskostnaðar í skaðabætur vegna skíðaóhapps. 

Í yfirlýsingu frá Skíðafélaginu segir að næstu dagar verða notaðir til þess að fara yfir stöðuna og kanna meðal annars hvort rekstrargrundvöllur svæðisins sé brostinn.  Gert er ráð fyrir að í lok vikunnar liggi fyrir hvort svæðið verður opnað aftur í vetur.

„Veturinn í vetur hefur verið snjóléttur og nú eru lágmarksaðstæður á skíðasvæðinu en samt sem áður hefur svæðið verið opið í 75 daga á skíðavertíðinni.  Á skíðasvæðinu starfa sjö starfsmenn í fimm stöðugildum. Rúmlega 100 börn og unglingar stunda æfingar hjá félaginu og eru fjórir þjálfarar auk aðstoðarfólks sem sjá um kennslu og þjálfunm,“ segir í yfirlýsingu frá stjórn Skíðafélags Dalvíkur


Athugasemdir

Nýjast