Finnskur varnarmaður til liðs við Þór í fótboltanum

Akseli Kalermo ný leikmaður Þórsara  í fótboltanum  Mynd  Thorsport.is
Akseli Kalermo ný leikmaður Þórsara í fótboltanum Mynd Thorsport.is

Heimasíða Þórs greinir frá þvi að finnski leikmaðurinn Akseli Kalermo hafi skrifa undir samnig við knattspyrnudeild félagsins  og leiki með liðinu  á komandi  keppnistímabili.  Kalermo sem er  26 ára gamall leikur i stöðu miðvarðar og kemur til Þórsara frá Litháenska félaginu FK Riteriai sem er frá Vilinius. 

Nánar  segir  áðurnefndri heimasíðu Þórs. 

,,Akseli, eða Axel eins og hann er alltaf kallaður, er 26 ára gamall miðvörður sem hefur spilað í efstu deild í Litháen undanfarin tvö og hálft ár. Axel á leiki fyrir öll yngri landslið Finnlands og þegar hann var sautján ára gamall var hann keyptur til ítalska stórliðsins Atalanta. 

„Axel er ætlað að leysa Orra Sigurjónsson af. Við erum búnir að vera að bíða aðeins með og sjá hvernig meiðslin hjá Bjarka og Bigga myndu þróast en þeir hafa verið meira og minna frá síðan um áramót,“ segir Þorlákur Árnason, þjálfari Þórs.

„Axel er stór og sterkur varnarmaður og er góður á boltanum. Hann spilaði á sínum unglingsárum með Brommapojkarna í Svíþjóð og Atalanta á Ítalíu og er mjög vel skólaður leikmaður. Hann ætti að styrkja liðið mjög mikið,“ segir Þorlákur.

Axel kemur til landsins á morgun og tekur sína fyrstu æfingu með liðinu."

Þórsarar hafa verið stórtækir á  stórtækir á leikmannamarkaðnum  í vetur og er Kalermo sjöundi leikmaðurinn sem félagið fær til liðs við sig. Ljóst er að lið Þórs er til alls liklegt á komandi leiktíð og markið sett hátt.


Athugasemdir

Nýjast