Vormót UMSE í frjálsum íþróttum fer fram mánudaginn 21. júní og miðvikudaginn 23. júní á Þórsvelli. Mótið hefst klukkan 18:00 báða dagana og er mótið öllum opið. Þann 21. júní keppa 13 ára og eldri og 23. júní keppa 12 ára og yngri.
Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2., og 3. sæti til keppenda 11 ára og eldri og þátttökuviðurkenningar til 10 ára og yngri. Þátttökugjald er 500 krónur á hverja grein og fer skráning fram í gegnum mótaforrit FRÍ .