Völsungur - Þjálfarar ráðnir á mfl. karla í knattspyrnu

Nýráðnir þjalfarar við undirskrift Bjarki Baldvinsson til vinstri og Aðalsteinn Jóhann Friðriksson t…
Nýráðnir þjalfarar við undirskrift Bjarki Baldvinsson til vinstri og Aðalsteinn Jóhann Friðriksson til hægri. Mynd Haffi

Græni herinn Facebook síða tileinkuð knattspyrnudeild Völsungs segir frá þvi í kvöld að ráðnir hafi verið þjalfarar á karlalið félagsins í knattspyrnu.

Í tilkynningu Völsungs segir:

Knattspyrnuráð Völsungs hefur gengið frá samningi við nýtt þjálfarateymi hjá meistaraflokki karla og er okkur mikil ánægja að kynna það til leiks.

Aðalsteinn Jóhann Friðriksson tekur við sem aðalþjálfari Völsungs og honum til aðstoðar verður Bjarki Baldvinsson. Ungt og efnilegt þjálfarateymi sem við bindum miklar vonir við. Alli hefur stýrt liðinu til bráðabirgða það sem af er vetri og staðið sig með mikilli prýði.
Aðalsteinn gerir 2ja ára samning um þjálfun meistaraflokka bæði karla- og kvennaliða Völsungs meðan Bjarki gerir samning út útistandandi tímabil. Alli hefur þjálfað börn og unglinga allt sitt líf og meistaraflokk kvenna síðastliðin þrjú tímabil með fínum árangri. Bjarki er tiltölulega nýr í þjálfun en hokinn af leikreynslu.
„Verkefnið er stórt og mikið en ég er fullur tilhlökkunar á að takast á við það. Leikmannahópar liðanna eru, eins og svo oft áður hér á Húsavík, mjög ungir en klárlega mjög spennandi líka,“ sagði Aðalsteinn við undirskrift.
 
Aðalsteinn er næst leikjahæsti leikmaður í sögu Völsungs með 262 leiki í deild og bikar, en það er einmitt eingöngu Bjarki sem er honum leikjahærri með 292 leiki. Bjarki hefur í þeim skorað 47 mörk og Alli 35 mörk. Það er því mikil leikreynsla sem tekin er við liðinu.
„Það að fá Bjarka inn í þetta er geggjað. Við þekkjumst vel eftir að hafa spilað saman þó nokkuð marg leiki og erum á sömu bylgjulengd með hvernig við viljum sjá boltann spilaðan. Sumarið verður hrikalega skemmtilegt og vonandi munu sem flestir styðja við bakið á liðunum okkar, mæta á völlinn og þannig hjálpa meistaraflokkunum okkar að gera þetta sumar sem eftirminnilegast,“.
 
Knattspyrnuráð lýsir yfir mikilli ánægju með þessa ráðningu og munu þjálfarar og ráð leitast eftir því í hvívetna að fylgja gildum Völsungs og afreksstefnu. Frekari fréttir af liðunum okkar eru svo væntanlegar á næstunni.
Við erum gríðarlega spennt fyrir komandi tímabili liðanna okkar og vonumst eftir miklum og góðum stuðningi úr brekkunni í sumar.
ÁFRAM VÖLSUNGUR!!

Athugasemdir

Nýjast