VMA - Frístundahúsið rís

Síðustu veggeiningunni komið á sinn stað      Mynd  vma.is
Síðustu veggeiningunni komið á sinn stað Mynd vma.is

Á heimasíðu Verkmenntaskólans  er sagt frá skemmtilegu verkefni sem nemendur á þriðju önn í húsasmíði eru að vinna að þ.e bygginu  frístundahús.  Um er að ræða árlegt verkefni  fyrir nema á þriðju önn  og hefur vel til tekist gegnum tíðina en liklega er þetta amk í tíunda árið í röð sme þessi háttur er hafður á við VMA.  Á senni stigum koma svo verðandi pípulagningamenn  og rafvirkjar að verkefninu svo að segja má sem sanni að þarna sé á ferð frábært verkefni fyrir verðandi iðnaðarmenn.  

,,Frá byrjun haustannar hafa nemendur á þriðju önn í húsasmíði unnið ötullega að því að forsmíða gólf og útveggi frístundahúss sem byggt er árlega norðan við húsnæði byggingadeildar. Í gær var komið að því að reisa útveggi hússins og það var gert með aðstoð kranabíls sem dró forsmíðað gólfið út úr skólanum og hífði síðan hverja veggeiningu á sinn stað.

Góðum áfanga er náð með því að reisa húsið og í kjölfarið er gengið frá þakinu og síðan koll af kolli.

Húsið í ár er í grunninn eins og hús undanfarinna tveggja ára en það er hannað af Steinmari H. Rögnvaldssyni. Húsið er að utanmáli 64 fermetrar og í því eru tvö svefnherbergi, baðherbergi/þvottahús, stofa og eldhús. Svefnloft er í hluta hússins.

Bygging frístundahússins er hið stóra verkefni nemenda á þriðju önn í húsasmíði í vetur og það kemur síðan í ljós í lok vorannar hversu langt húsið verður komið.

Að byggingunni koma einnig nemendur í bæði pípulögnum og rafvirkjun og því er óhætt að segja að með henni skapist verkþjálfun fyrir marga nemendur í ólíkum iðngreinum. Margar flugur eru því slegnar í einu höggi.

Húsið sem var byggt af nemendum á síðasta skólaári var selt vestur í Bjarnarfjörð á Ströndum og var það flutt þangað í síðasta mánuði."

Segir í frétt  á www.vma.is


Athugasemdir

Nýjast