Visit Húsavík smáforritið komið út

Húsavíkurstofa kynnir nýtt app sem er afrakstur sumarverkefnis háskólanema á vegum Þekkingarnets Þingeyinga í sumar. Nú er hægt að nálgast Visit Húsavík smáforritið fyrir Android og iOS stýrikerfi. Smáforritið gefur íbúum og ferðamönnum möguleika á því  að vera með  „Húsavík í vasanum,“ seins og segir í tilkynningu frá Húsavíkurstofu.

app

Hugmyndin byggist á að auðvelda innlendum og erlendum ferðamönnum aðgengi að upplýsingum um afþreyingu og þjónustu á svæðinu. Smáforritið byggir meðal annars á upplýsingum af heimasíðu Húsavíkurstofu (visithusavik.is).

Auk upplýsinga um afþreyingu og þjónustu má einnig finna í appinu kynningar á gönguleiðum og ganga um bæinn með hljóðleiðsögn. Í smáforritinu birtast áhugaverðir staðir og notandinn getur hlustað á stutta sögu um hvern og einn stað. Notendur geta opnað gagnvirkt kort og fylgt þessum leiðum eftir í gegnum bæinn.

Það tók teymi háskólanemanna um tíu vikur að fullklára smáforritið sem er eins og áður var komið inn á, fáanlegt bæði fyrir Android og iOS stýrikerfin og má finna ef slegið er inn „Visit Húsavík” í Play eða App Store.

Tölvunarfræðineminn Sandra Björk Arnarsdóttir forritaði smáforritið og vann að því ásamt Þórdísi Öldu Ólafsdóttur. Páll Hlíðar Svavarsson sá um upplýsingaöflun og framkvæmd sögugöngunnar í smáforritinu.

Eins og er þá er smáforritið og sögugangan aðeins á ensku.


Athugasemdir

Nýjast