Senn hafa jólatrén lokið hlutverki sínu á heimilum bæjarbúa og þá þarf að losa sig við þau. Á vef Akureyrarbæjar kemur fram að í þessari viku, eða dagana 8.-12. janúar, munu starfsmenn Umhverfismiðstöðvar fjarlægja jólatré sem sett hafa verið við lóðarmörk og einnig verða gámar fyrir jólatré við Kaupang, Hagkaup, Hrísalund, Bónus í Naustahverfi og verslunarmiðstöðina við Sunnuhlíð. Trén verða kurluð og notuð í stíga eða sem yfirlag á trjá- og runnabeð.