Vill annað sætið á lista Framsóknarflokksins

Jón Björn.
Jón Björn.

Jón Björn Hákonarson gefur kost á sér í annað sæti á lista Framsóknarflokksins í NA-kjördæmi vegna þingkosninga í september nk. Í tilkynningu segir að Jón Björn sé 48 ára gamall Norðfirðingur, og er búsettur í því hverfi sveitarfélagsins Fjarðabyggðar.

„Ég hef starfað lengst af á vettvangi sveitarstjórnarmála og verið svo lánsamur að hafa fengið traust þar til fjölbreyttra verka. Ég tók sæti sem aðalmaður í bæjarstjórn Fjarðabyggðar árið 2010 og var forseti bæjarstjórnar þangað til haustið 2020 er ég tók við starfi bæjarstjóra. Afskipti mín af sveitarstjórnarmálum hófust þó fyrst á kjörtímabilinu 1994-1998 þegar ég tók fyrst sæti í nefndum á vegum sveitarfélagsins, sem þá var Neskaupstaður, og hef verið virkur á þeim vettvangi síðan. Ég hef setið í og stýrt flestum nefndum Fjarðabyggðar á þessum tíma, ásamt því að sitja í stjórnum samstarfsvettvangs sveitarfélaganna á Austurland og landsvísu.

Þá hef ég einnig setið í stjórnum fyrirtækja og tekið þátt í ýmsum öðrum félagsstörfum. Ég hef um árabil verið virkur í starfi Framsóknarflokksins. Ég var kjörinn ritari flokksins árið 2016 og í þeim störfum hef ég fengið að kynnast undirstöðum flokksins, og hef lagt mig fram við að hlúa vel að því öfluga flokkstarfi sem finna má í Framsóknarfélögum víða um land. Sú öfluga grasrót sem innan flokksins starfar er mikilvæg og ég hef stundum sagt að í henni grundvallist kjörorð samvinnunar – Máttur hinnar mörgu- sem á að vera undirstaða Framsóknarflokksins sem félagshyggjuafls,“ segir meðal annars í tilkynningu.


Athugasemdir

Nýjast