Vill að jafnréttisfulltrúi verði ráðinn að nýju

Meirihluti L-listans hefur gert þá tillögu að íþróttamál verði færð undir samfélags- og mannréttindadeild og að starfi framkvæmdastjóra íþróttadeildar verði breytt í starf forstöðumanns íþróttamála. Á fundi sínum í vikunni samþykkti stjórnsýslunefnd fyrir sitt leyti flutning íþróttamála til samfélags- og mannréttindadeildar. Tillagan hafði áður hlotið stuðning í íþróttaráði og samfélags- og mannréttindaráði.

Andrea Sigrún Hjálmsdóttir fulltrúi V-lista í stjórnsýslunefnd lagði til að samhliða breytingum á starfi íþróttafulltrúa verði ráðinn að nýju jafnréttisfulltrúi Akureyrarbæjar.

Akureyri hefur löngum verið í fararbroddi hvað jafnréttismál varðar en þróun í samfélaginu gefur vísbendingar um stöðnun og jafnvel bakslag í jafnrétti kynjanna. Af því má sjá að nauðsynlegt er að efla áherslu á jafnréttisstarf í bæjarfélaginu. Það er ljóst að breytingar á fyrirkomulagi starfs íþróttafulltrúa Akureyrarbæjar og færsla þessa stóra málaflokks yfir til samfélags- og mannréttindadeildar hefur í för með sér verulega aukin verkefni fyrir framkvæmdastjóra deildarinnar. Þessi sami framkvæmdastjóri hefur jafnframt sinnt hlutverki jafnréttisráðgjafa og einsýnt er að með fyrrnefndum breytingum verður veruleg skerðing á þeim tíma sem framkvæmdastjóri deildarinnar hefur til að sinna hlutverki sínu sem jafnréttisfulltrúi. Með því að ráða jafnréttisfulltrúa sýna bæjaryfirvöld í verki vilja sinn til þess að vinna af einurð að jafnrétti kynjanna á þeim stóra vinnustað sem Akureyrarbær er, sem og í bæjarfélaginu öllu. Stjórnsýslunefnd vísaði tillögu Andreu til umsagnar samfélags- og mannréttindaráðs.

 

Nýjast