Vilja að Norðurþing taki á móti flóttafólki

Á fundi byggðaráðs í vikunni lögðu Óli Halldórsson og Sif Jóhannesdóttir fram tillögu um að Norðurþing ítreki boð um að sveitarfélagið geti tekið við flóttafólki. Sveitarfélagið hefur áður lýst yfir áhuga á að taka við flóttafólki árið 2015.

Telja Sif og Óli ekki nóg að gert á Íslandi í málefnum flóttamanna og leggja því fram tillögu um að Norðurþing ítreki beiðni um að taka við flóttafólki við stjórnvöld. „Töluverð reynsla er til staðar í sveitarfélaginu Norðurþingi, t.d. í grunnskólum og leikskólum, við mótttöku og aðlögun barna frá öðrum menningarsvæðum og með annað móðurmál en íslensku. Það er mat undirritaðra að auk þess að koma fólki til aðstoðar sem þarf á því að halda, getur hlotist af slíku lærdómur og jákvæð áhrif fyrir samfélagið,“ segir í tillögunni en byggðaráð tók undir bókunina sem má lesa í heild sinni hér að neðan.

Á liðnu ári var Norðurþing meðal þeirra sveitarfélaga sem bauðst með formlegum hætti til að taka á móti flóttafólki í sveitarfélaginu. Undirrituð telja ekki nóg að gert á Íslandi í málefnum flóttamanna og leggja til að Norðurþing ítreki þessa beiðni við stjórnvöld. Bent skal á að í Norðurþingi eru afar góðar aðstæður til að taka á móti nýju fólki og allir velkomnir. Mikil atvinna er í boði á svæðinu og félagslegir innviðir sterkir. Í nálægðinni í minni samfélögum getur að mörgu leyti falist mikill styrkur til að takast á við verkefni eins og þetta. Móttaka nýrra íbúa, þ.m.t. flóttamanna frá öðrum löndum, byggir ekki eingöngu á kerfislegum aðgerðum heldur persónulegum og samfélagslegum þáttum. Töluverð reynsla er til staðar í sveitarfélaginu Norðurþingi, t.d. í grunnskólum og leikskólum, við mótttöku og aðlögun barna frá öðrum menningarsvæðum og með annað móðurmál en íslensku. Það er mat undirritaðra að auk þess að koma fólki til aðstoðar sem þarf á því að halda, getur hlotist af slíku lærdómur og jákvæð áhrif fyrir samfélagið.
Undirrituð leggja til við byggðarráð að boð Norðurþings verði þegar í stað ítrekað með bréflegum hætti. Ef viðbrögð verða jákvæð verði málið undirbúið komandi haust, þ.m.t. húsnæðisúrræði og aðrir nauðsynlegir þættir.

Athugasemdir

Nýjast