Vikublað dagsins er komið út.
25. maí, 2023 - 12:28
Gunnar Níelsson - gunnar@vikubladid.is
Blað dagsins hefur litið dagsins ljós og það er eins og vera ber eitt og annað þar að finna.
Krossgata og spurningar. Geta pabbar ekki grátið spyr Inga Dagný Eydal, Vaglaskógur verður opnaður um helgina, eldri borgurum gefst á ný kostur á að kaupa heitar máltíðir á viðráðanlegu verði.
Ólöf Björk Sigurðardóttir(Ollý) fékk á dögunum gullmerki fyrir sjálfboðaliðastörf innan íþróttahreyfingarinnar, en hún hefur staðið í stafni íshokkídeildar Skautafélags Akureyrar í nær tvo áratugi.
Á Húsavík ,,reis» BarnaBær í krakkaveldi
Hjálmar Bogi fer yfir fyrsta árið við stjórn á Norðurþingi, Steini Pé og Fúsi Helga skrifa afmælisgrein um Hún og Eiríkur Jóhannsson formaður KA er i viðtali
Áskriftarsíminn er 860 6751!
Nýjast
-
Úthlutun úr Menningar-og viðurkenningarsjóði KEA í 90 skipti
- 01.12
KEA afhenti styrki úr Menningar- og viðurkenningasjóði félagsins þann 1. desember og fór styrkúthlutunin fram í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri nú síðdegis. Var þetta í 90. skipti sem veitt er úr sjóðnum. Úthlutað var tæplega 24,7 milljónum króna til 60 aðila. Styrkúthlutun tók til þriggja flokka samkvæmt reglugerð sjóðsins: Menningar- og samfélagsverkefna, Íþrótta- og æskulýðsfélaga og Ungra afreksmanna. -
Eldvarnarátak LSS - Reykskynjarar, slökkvitæki, eld- varnarteppi mikilvæg á heimilum
- 01.12
Eldvarnaátak Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, LSS hófst með heimsókn Slökkviliðs Akureyrar í Síðuskóla á Akureyri. Halla Björk Reynisdóttir, forseti bæjarstjórnar Akureyrarbæjar, og Bjarni Ingimarsson, formaður LSS ræddu um mikilvægi eldvarna fyrir öryggi heimilanna við börn í 3. bekk. Sýnd var myndin um Loga og Glóð og baráttu þeirra við Brennu-Varg auk þess sem afhent var eintak af handbók Eldvarnarbandalagsins um eldvarnir heimilisins, endurskinsborði frá Neyðarlínunni og fleira. -
FIMAK VERÐUR FIMLEIKADEILD KA
- 01.12
Sameining Fimleikafélags Akureyrar, FIMAK og Knattspyrnufélags Akureyrar, KA, var samþykkt einróma á félagsfundum beggja félaga sem haldnir voru í gærkvöldi. Sameiningarviðræður hafa staðið yfir undanfarna mánuði en Íþróttabandalag Akureyrar og Akureyrarbær hafa einnig komið að þeim viðræðum. -
Tvö ný smáhýsi í Dvergholti afhent
- 01.12
Tvö ný smáhýsi fyrir fólk með fjölþættan vanda voru afhent sveitarfélaginu fimmtudaginn 30. nóvember. Fyrir voru tvö smáhýsi á lóðinni við Dvergholt 2 en þau hafa verið í notkun síðan 2020. Húsin voru byggð af SS Byggi og stóð til að afhenda þau í lok febrúar 2024 en verkinu var lokið fyrr en áætlanir gerðu ráð fyrir og því voru þau afhent núna, þremur mánuðum á undan áætlun. Smáhýsin tvö eru vönduð tveggja herbergja hús, 55 m² að stærð, byggð úr krosslímdum timbureiningum og klædd að utan með álklæðningum. Við öll húsin er steypt verönd -
Akkúrat öfugt 2 - Útgáfuhóf í Eymundsson í dag föstudag
- 01.12
,,Við ætlum að fagna útkomu bókar okkar Akkúrat öfugt 2 í útgáfuhófi sem verður í Eymundsson í Hafnarstrætinu í dag föstudag kl 16:30. Það er óneitnalega mikill spenningur í okkur , lika tilhlökkun en þannig fylgir víst þvi að senda frá sér bók" sagði Ásgeir Ólafsson Lie ,, Við Hildur vonumst auðvitað til þess að sjá sem flesta og hlökkum til". Í Akkúrat öfugt 2 er sagt frá ævintýrum sögupersónunnar á afmælisdegi hennar og þeim leiðum sem valdar eru til að fagna deginum. Í gegnum bókina koma reglulega spurningar sem ætlaðar eru til þess að lesandi geti staldrað við, velt þeim fyrir sér og virkjað ímyndunaraflið. Bókin er skrifuð sem léttlestrarbók og hugsuð fyrir alla. Litríkar myndirnar henta vel fyrir yngri börn og með auknum þroska geta þau tekið sífellt meiri þátt í að setja sögupersónuna í ýmsar aðstæður. -
Tvær nýjar sýningar á Listasafni
- 01.12
Tvær sýningar verða opnaðar í Listasafninu á Akureyri á laugardag, 2. desember kl. 15, annars vegar sýning Sigurðar Guðjónssonar, Hulið landslag, og hins vegar sýningin Safn: Hildigunnur Birgisdóttir og verk úr safneign. Á opnunardegi kl. 15.40 verður listamannaspjall um báðar sýningar. Sigurður Guðjónsson er þekktur fyrir magnþrungin vídeóverk, þar sem mynd, hljóð og rými mynda órofa heild. Hann beinir einkum sjónum að virkni margs konar tækjabúnaðar, þar sem áhorfandinn er lokkaður inn í heim sefjandi endurtekningar, takts og reglu og mörk hins mannlega og vélræna verða óljós. Safn: Hildigunnur Birgisdóttir og verk úr safneign Hin sýningin varð til þannig að safnstjóri Listasafnsins á Akureyri, Hlynur Hallsson, leitaði til Jóns B. K. Ransu, sýningarstjóra, um að setja saman sýningu úr safneigninni, sem þá leitaði til myndlistarkonunnar Hildigunnar Birgisdóttur til að vinna sjónrænt með safneignina – í raun eins og að um hvert annað hráefni væri að ræða. Hildigunnur er þekkt fyrir að nota söfnun og skrásetningu sem hluta af listsköpunarferlinu. -
Verkefni við nýja aðveituæð milli Akureyrar og Hjalteyrar lokið
- 01.12
„Þetta er stór áfangi og gleðilegur,“ segir Hörður Hafliði Tryggvason fagstjóri hita- og vatnsveitu hjá Norðurorku en stóru verkefni sem staðið hefur yfir undanfarin ár við gerð Hjalteyrarlagnar, aðveituæðar milli Akureyrar og Hjalteyrar, er að ljúka nú í vikunni. Kostnaður við verkið nemur ríflega tveimur milljörðum króna. -
Viðgerðir á hjúkrunarheimilinu Hlíð hafa áhrif á starfsemi SAk
- 01.12
Lokun rýma á hjúkrunarheimilinu Hlíð hefur haft mikil áhrif á starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri og aukið kostnað. -
Rekstur Iðnaðarsafns færður yfir til Minjasafns - þjónustusamningur til þriggja ára
- 30.11
Bæjarráð Akureyrar hefur samþykkt að unnið verði að gerð þjónustusamnings við Minjasafnið á Akureyri um rekstur Iðnaðarsafnsins næstu þrjú árin.
Athugasemdir