Óskað var eftir tilnefningum frá starfsmönnum, skólum og foreldrum um nemendur og starfsmenn eða verkefni sem talin voru hafa skarað fram úr í
skólastarfi. Alls bárust 28 tilnefningar um starfsmenn eða verkefni og 25 nemendur. Valnefnd sem skipuð var fulltrúum frá skólanefnd, samtökum foreldra
og Skólaþróunarsviði HA fór yfir allar tilnefningar og gerði tillögu til skólanefndar sem skólanefnd samþykkti á fundi sínum
þann 31. maí sl.
Verða nöfn þeirra einstaklinga og verkefna sem hljóta viðurkenningu þetta árið kunngjörð á samkomunni. Áhugasamir eru hvattir til
að mæta í Listasafnið.