Viðurkenndir bókarar útskrifast frá Háskólanum í Reykjavík og SÍMEY

Undanfarin 2 ár hefur Háskólinn í Reykjavík í samvinnu við SÍMEY boðið réttindanám en þeir nemendur sem stóðust próf fengu staðfestingu efnahags- og viðskiptaráðuneytis um starfsréttindi sem viðurkenndir bókarar skv. 43. grein laga nr. 145/1994 um bókhald.  

Á föstudag í síðustu viku útskrifuðust 69 nemendur í Reykjavík en í gær útskrifuðust 12 þeirra nemenda sem hófu nám hjá SÍMEY á Akureyri. Hlutfall útskrifaðra hér fyrir norðan er 80%, sem er 6 prósentustigum hærra en fyrir sunnan og ívið hærri prósenta en undangengin ár í Reykjavík. Verkefnastjórar námsins voru þau Birna Björnsdóttir hjá Háskólanum í Reykjavík og Heimir Haraldsson hjá SÍMEY. Verðlaun fyrir bestan námsárangur hlaut Lísbet Vala Snorradóttir.

Nýjast