Vetraríþróttahátíð ÍSÍ á Akureyri sett þann 6. febrúar

Undirbúningur fyrir Vetraríþróttahátíð ÍSÍ 2010 stendur sem hæst en hátíðin fer fram á Akureyri þar sem Vetraríþróttamiðstöð Íslands er staðsett. Hátíðin verður sett laugardaginn 6. febrúar í Skautahöllinni með mikill sýningu þar sem fram koma m.a. hæfileikaríkir iðkendur í listhlaupi en Skautahöllin fagnar einmitt 10 ára afmæli sínu á þessu ári.  Ólympíufararnir munu heiðra samkomuna og er það rétt áður en þeir halda utan til Vancouver í Kanada.  

Vetraríþróttahátíð ÍSÍ stendur nú yfir frá 6. febrúar til 21. mars auk þess sem Andrésar Andar leikarnir sem fram fara í lok apríl eru undir hatti Vetraríþróttahátíðarinnar.  Á dagskrá VH 2010 er að finna viðburði sem ná yfir sem flestar íþróttagreinar þar sem snjór og útivist eru í aðalhlutverki.  
Hlíðarfjall skipar stóran sess í hátíðinni þar sem hefðbundin skíði, gönguskíði, telemarkskíði og snjóbretti verða í aðalhlutverki hvort heldur er í keppnum eða einfaldlega sem ljúf dægradvöl fyrir alla.  Einnig verður boðið upp á námskeið skíðaiðkun fyrir fatlaða.  Í Skautahöllinni verður keppt í listhlaupi, íshokkí, krullu og endurvakin verður bæjarkeppnin í íshokkí þar sem erkifjendurnir Akureyri og Reykjavík takast á.  
Hin árlega Vetrarsportsýning sem Félag vélsleðamanna í Eyjafirði stendur fyrir verður aðra helgi í febrúar og sömu helgi verður snjócross og íscross. Einnig verður blásið til keppni í samhliða spyrju á vélsleðum við Skautahöllina. Þeir sem vilja njóta útivistar með því að ganga eða hlaupa geta tekið þátt í Vetrarhlaupi UFA eða jafnvel Skaflahlaupi UFA.  Hestafélagið Léttir stendur fyrir Stjörnutölti, Bílaklúbbur Akureyrar sýnir ísakstur og skátar leggja vetrarþrautir eins og þeim erum einum lagið.  

Dagskrá Vetraríþróttahátíð ÍSÍ er að finna á heimasíðu Vetraríþróttamiðstöðvarinnar www.vmi.is og er þessa daga verið að klára að setja hana þar inn.

Nýjast