Verulegt rekstrartap hjá Búseta á Akureyri í fyrra

Verulegt rekstrartap varð hjá Búseta á Akureyri á síðasta ári, sem gengur á efnahag félagsins. Félagið hefur nýtt sér frystingu lána hjá Íbúðalánasjóði til að takast á við tímabundna erfiðleika í rekstri og einstaklingum sem hafa misst vinnu/tekjur hefur boðist að greiða skert mánaðargjald - en ganga á inneign sína í búseturétti á móti.  

Þá  hefur verðlækkun fasteigna og offramboði íbúða á Akureyri verið mætt með því að almenn verðskrá félagsins hefur verið fryst og/eða lækkuð um 3-5% frá og með júlí 2009. Þetta var á meðal þess sem fram kom á aðalfundi Búseta á Akureyri í síðustu viku. Guðlaug Kristinsdóttir var endurkjörinn formaður félagsins og hún segir ástandið vissulega erfitt nú um stundir. "Það sem hefur verið að gerast er veruleg gengishækkun á láninu sem tekið var vegna framkvæmda í Kjarnagötu en upphæðin hefur tvöfaldast og er nú um tveir milljarðar króna. Jafnframt hefur lækkun á fasteignaverði einnig áhrif."

Guðlaug segir að aðeins ein íbúð félagsins sé laus um þessar mundir en hún segir að vissulega harðni á dalnum hjá félaginu líkt og öðrum. "Það er eitthvað sem alltaf gerist þegar dregst saman og það er meiri hreyfing í íbúðum nú en var fyrir tveimur til þremur árum. Við höfum gert ýmislegt til þess að draga úr kostnaði til að halda sjó á meðan þetta tímabil gengur yfir. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem við lendum í niðursveiflu. Ástandið hefur alltaf skánað aftur og við vonum að það gerist einnig nú. Og á meðan íbúðirnar eru í leigu, er félagið sem slíkt ekki í hættu."

Guðlaug segir að framundan sé að ljúka þeim framkvæmdum sem eru í gangi í Kjarnagötu en að ekki standi til að ráðast í nýjar framkvæmdir. Alls verða rúmlega 80 íbúðir á reitnum í Kjarnagötu þegar framkvæmdum verður lokið.

Nýjast