„Verið að mismuna íþróttafélögunum gróflega“

Þórsarar eru ósáttir við að fá ekki styrk vegna frístundarútu líkt og KA. Mynd/Þröstur Ernir
Þórsarar eru ósáttir við að fá ekki styrk vegna frístundarútu líkt og KA. Mynd/Þröstur Ernir

Óánægja er á meðal félagsmanna Íþróttafélagsins Þórs vegna ákvörð­unar íþróttaráðs um að hafna styrkbeiðni um frístundarútu. Þór óskaði eftir styrk að upphæð 750.000 kr. til að sinna akstri yngstu iðkenda sinna í fótbolta og körfubolta milli skóla og íþróttamannvirkja. Íþróttafélagið KA sótti um styrk til bæjarins fyrr í haust og fékk 300.000 kr. styrk frá bænum vegna frístundarútu fyrir börn í fótbolta.

Eiður Arnar Pálmason, framkvæmdastjóri Þórs, segir málið með ólíkindum og verið sé að mismuna íþróttafélögum. Ingibjörg Isaksen, formaður
 Íþrótta­ og tómstundaráðs, segir styrkinn til KA vera tilraunaverkefni Akureyrarbæjar til eins árs og hafnar því að um mismunun sé að ræða. Nánar er fjallað um þetta mál í prentútgáfu Vikudags.

Nýjast