Verðlaunahafar á Íslandsmótinu í iðn- og verkgreinum heiðraðir

Verðlaunahafar og skólameistari í Gryfjunni í dag. Mynd: Óskar Halldórsson/VMA
Verðlaunahafar og skólameistari í Gryfjunni í dag. Mynd: Óskar Halldórsson/VMA

Nemendur í Verkmenntaskólanum á Akureyri (VMA) stóðu sig einkar vel á Íslandsmóti iðn- og verkgreina um liðna helgi í Reykjavík. Að því tilefni var efnt til Gryfjudags í löngufrímínútunum í VMA þar sem Sigríður Huld Jónsdóttir kallaði verðlaunahafa upp á svið og heiðraði þá.

„Bróðurpartur verðlaunahafanna var á staðnum og fékk rós frá skólanum og verðskuldað lófatak frá samnemendum og starfsfólki,“ segir í frétt á heimasíðu VMA

Sigríður Huld sagðist vera afar stolt af nemendum skólans enda hefðu þeir unnið til verðlauna í öllum þeim greinum sem þeir kepptu í. Óskaði hún nemendum innilega til hamingju með frábæran árangur og jafnframt kennurum þeirra.

Nýjast