Vel sótt Akureyrarvaka hófst í gær

Hvert atriðið rak annað í dagskrá gærkvöldsins á Akureyrarvöku fram undir miðnætti.
Myndirnar tók A…
Hvert atriðið rak annað í dagskrá gærkvöldsins á Akureyrarvöku fram undir miðnætti. Myndirnar tók Andrés Rein Baldursson.

Akureyrarvaka var formlega sett í Lystigarðinum á Akureyri í gærkvöldi. Forseti bæjarstjórnar, Heimir Örn Árnason, setti hátíðina, minnti á mikilvægi þess að fólk haldi vel hvert utan um annað, og bað gesti að lúta höfði í þögn og hugsa hlýtt til þeirra sem nú eiga um sárt að binda í nágrannabænum Blönduósi.

Síðan rak hvert atriðið annað í dagskrá kvöldsins fram undir miðnætti. Klukkan 22 hófst Draugaslóð í Innbænum og hefur sá viðburður líklega aldrei verið eins vel sóttur en lögreglan telur að þar hafi verið á annað þúsund manns. Á sama tíma hélt Högni Egilsson magnaða tónleika í Menningarhúsinu Hofi og myndlistarsýningar voru opnaðar um allan bæ. Að sögn lögreglu fór allt vel fram.

Dagskrá Akureyrarvöku í dag og á morgun er að finna á Akureyrarvaka.is.

Akureyrarvaka 2

Akureyrarvaka 1


Athugasemdir

Nýjast