Vel heppnuð hátíð á Bakkafirði

Fólk skemmti sér fallega á Bakkafest þrátt að góða veðrið hafi verið í hinu liðinu. Mynd: Langanesby…
Fólk skemmti sér fallega á Bakkafest þrátt að góða veðrið hafi verið í hinu liðinu. Mynd: Langanesbyggð

Bakkafest var haldið á Bakkafirði um nýliðna helgi og heppnaðist vel.

Þrátt fyrir heldur kuldalegt veður heimsótti fjöldi fólks Bakkafjörð og tók þátt í ýmsum viðburðum, s.s. gönguferð, sunddiskói og zumba. Þá buðu Bakkasystur í vöfflukaffi í tilefni hátíðarinnar og kynntu starfsemi sína.

Opnunarmót var haldið fyrir nýjan og glæsilegan níu holu frisbívöll. Á föstudags- og laugardagskvöld var blásið til tónleika þar sem hátíðargestir skemmtu sér konunglega langt fram á nótt. Hátíðin var sem fyrr opin öllum og var hún góð kynning fyrir Bakkafjörð. Greint er frá þessu á vef Langanessbyggðar þar sem skoða má fleiri myndir frá hátíðinni. 


Athugasemdir

Nýjast