03. desember, 2009 - 12:06
Fréttir
Kvennakór Akureyrar stóð fyrir sínum árlegu tónleikum til styrktar Mæðrastyrksnefnd Akureyrar þann 29. nóvember sl. Þetta var
í 7. sinn sem kórinn hélt þessa tónleika og tókust þeir afar vel. Í lok tónleikanna voru Ingu Ellertsdóttur frá
Mæðrastyrksnefnd Akureyrar afhentar 350.000 krónur sem var afrakstur tónleikanna.
Venjan er að kórinn fái góða gesti til liðs við sig og í þetta sinn voru það Kvennakórinn Salka á Dalvík og
Skólakór Hrafnagilsskóla. Allir sem komu að tónleikunum á einhvern hátt gáfu vinnu sína, auglýsingar voru fríar og ekki
þurfti að greiða fyrir aðstöðuna í Akureyrarkirkju.