Vegagerðin framlengir samning við Andey um siglingar til Hríseyjar

Sævar á siglingu  Mynd Vegagerðin
Sævar á siglingu Mynd Vegagerðin

Vegagerðin hefur framlengt í annað sinn samning við Andey ehf. sem mun gilda frá 1. apríl til og með 31. desember 2023, um að halda uppi siglingum milli Hríseyjar og Árskógsands. Þetta er gert til að ekki verði þjónustufall á siglingum Hríseyjarferju en það myndi valda mikilli röskun á samgöngum við Hrísey. 

„Við í Hrísey erum afskaplega ánægð með þessa lausn og að hugsað sé til lengri tíma en bara yfir sumarið. Við treystum á reglulegar og góðar ferjuferðir og því léttir fyrir samfélagið að búið sé að ganga frá þessum málum út árið 2023. Núna styttist í páska og sumarið er handan hornsins, en þá er háanna tími  og ferðamenn streyma í heimsóknir til Hríseyjar. Það er því lykilatriði að samgöngur séu tryggar,“ segir Ásrún Ýr Gestsdóttir verkefnastýra hjá Áfram Hrísey.

Andey ehf. hefur séð um rekstur Hríseyjarferjunnar undanfarin ár en samningurinn rann út um áramótin. Vegagerðin bauð út siglingarnar að nýju og til stóð að gera nýjan samning á grundvelli útboðsferlis sem tæki gildi 1. janúar 2023. Hins vegar urðu ófyrirséðar tafir vegna kæru á útboðinu sem valda því að ekki er unnt að gera nýjan samning um þessar siglingar fyrr en niðurstaða í málinu liggur fyrir að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar.  

Til að bregðast við þessu var ákveðið að semja tímabundið í þrjá mánuð við Andey ehf., 1. janúar þessa árs til 31. mars, til að samgöngur milli Hríseyjar og Árskógsands féllu ekki niður. Nú er það samningstímabil að renna út og lausn á kæru á útboðinu ekki í höfn svo samningur var framlengdur í annað sinn


Athugasemdir

Nýjast