Veðurklúbburinn á Dalbæ tekinn til starfa eftir sumarfrí

Dalvík
Dalvík

Veðurklúbburinn á Dvalarheimilinu Dalbæ á Dalvík hefur tekið aftur til starfa eftir sumarfrí. Það er hann Bergur Þór Jónsson sem starfar við félagsstarf og iðju á Dalbæ. „Nýr starfsmaður tók við stjórn klúbbsins og með nýju fólki koma breytingar og nýjunga,“ segir Elísa Rán Ingvarsdóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri  á Dalbæ.

Á þriðjudag hittust sjö félagar í Veðurklúbbi Dalbæjar eftir langt sumarfrí til að ráða ráðum sínum.

Ekki var sérstaklega farið yfir veðrið undanfarið nema að því leyti að núna um miðjan september síðastliðinn komu svokallaðir Haustkálfar, en þeir boða frekar milt haust. 

Enda kemur það heim og saman við draum eins félagans og tunglkomu þann 6.október að október verði mildur með suðlægum áttum, en þó mögulega með einhverri rigningu eða éljum sem stoppa samt stutt við í byggð.

  

Draumar geta veður vitað

Er væta öfgakennd

En verst er þó með orðum litað

Að búa þarna í Grend. 

B.J.

Svo er hér ein vísa sem trúlega er kveðin á Völlum í Svarfaðardal 13. september 1841 eftir því sem segir í Bréfi Jónasar til Brynjólfs Péturssonar 8. október 1841. (Sjá: Ritverk Jónasar Hallgrímssonar II. bindi. Bréf og dagbækur, bls. 111–112).

Veðrið er hvurki vont né gott,

varla kalt og ekki heitt,

það er hvurki þurrt né vott,

það er svo sem ekki neitt..


Athugasemdir

Nýjast