Veðurklúbbur Dalbæjar ,,Búumst ekki við miklum stormum í desember þar sem eftirminnilegir hestar í draumum voru frekar rólegir að þessu sinni"

Veðurklúbbur  Dalbæjar kom saman til fundar í gær 6 des. og í kjölfarið var send út  eftirfarandi tilkynning.

 Veðurklúbbur Dalbæjar. 6. Desember. 2022.

 Fundurinn að þessu sinni var fámennur enda skellt á án fyrirvara af óviðráðanlegum ástæðum.

 Mættir voru. Haukur Haraldsson, Hörður Kristgeirsson, Kristján Loftur Jónsson og Bergur Þór Jónsson.

 Eins og á öllum fundum okkar hingað til var fyrst og fremst rætt um veður næsta mánuðinn, en í framhaldi af því fréttum við af kveðju frá aðilum tengdum Vegagerðinni sem vildu endilega hvetja klúbbinn til áframhaldandi dáða við notkun á gömlum og gildum leiðum til veðurspár, eins og meðal annars tunglkoma, drauma, lestur í skýjafar og margt fleira.

Einnig höfðu þessir sömu aðilar ásamt fleirum í gegnum tíðina óskað eftir að geta skoðað nýjar og eldri spár klúbbsins á aðgengilegum stað og tókum við því ákvörðun um að búa okkur til Andlitsbókarsíðu/Facebook sem heitir núna Veðurklúbbur Dalbæjar.

Endilega sendið klúbbnum vinabeiðni til að geta fylgst betur með öllu sem þar fer fram ásamt því að geta með tímanum skoðað eldri spár og mögulega fleiri upplýsingar.

 En snúum okkur þá að veðurspá desember mánaðar.

 Eftir skoðun á tunglkomu, draumum og tilfinningu félaga þá lítur út fyrir rólegheita veður hérna á norðurhluta landsins á svipaðan hátt og undanfarna tvo mánuði en þó með meira frosti. Við búumst ekki við miklum snjó í desember en þó fáum við líklega hvít jól með ekkert verulega þykku snjólagi. Við búumst ekki við miklum stormum í desember þar sem eftirminnilegir hestar í draumum voru frekar rólegir að þessu sinni, en auðvitað mun eitthvað aðeins blása stöku sinnum.

 Sem sagt, fínasti desember hérna á Stór Dalvíkursvæðinu.

___________________________________________________________

 

Landið var fagurt og frítt og fannhvítir jöklanna tindar,

himinninn heiður og blár, hafið var skínandi bjart.

Þá komu feðurnir frægu og frjálsræðis hetjurnar góðu

austan um hyldýpis haf hingað í sælunnar reit.

Höf. Jónas Hallgrímsson

__________________________________________

Með tunglkomu trú þú það

og tem þér gætni slíka:

Veðrabrigða von er að,

víst með fullu líka.

Höf. Ólafur Guðmundsson í Sauðanesi

______________________________________________________________

Það vonandi verður vel metið

Og fróðleik þið fundið þar getið

Með þrýstingi frá

Fólki á skjá

Er klúbburinn kominn í netið.

Höf. Bjór

 

 


Athugasemdir

Nýjast