Varðskipið Þór í slipp á Akureyri

Þór rennur inn í flotkvínna á Akureyri.
Þór rennur inn í flotkvínna á Akureyri.

Nýja varðskipið Þór kom til Akureyrar í dag og var skipinu siglt beint í flotkví Slippsins, þar sem gera þarf örlitlar lagfæringar á botni þess. Þegar kafarar gæslunnar köfuðu undir skipið við bryggju í Reykjavík kom í ljós að boltar sem halda grindum fyrir sjóinntöku voru lausir. Herða á þessa bolta og jafnvel skipta um þá. Varðskipið er í eins árs ábyrgð hjá skipasmiðastöð þess og allur kostnaður sem af þessu hlýst fellur á hana.

Nýjast