Vankaður vegna afstöðu Hildu Jönu

Ragnar Sverrisson.
Ragnar Sverrisson.

Stundum verður maður svolítið vankaður eftir að hafa lesið afstöðu einstakra bæjarfulltrúa til ýmissa álitamála. Þannig fór fyrir mér nú í gær þegar ég las gallharða afstöðu Hildar Jönu vinkonu minnar gegn hugmynd um byggingar fyrir neðan sjúkrahúsið. Hún taldi þær allt of háar og því ekki réttlætanlegt að breyta deiliskipulaginu til að koma slíkum byggingum fyrir þar.

Með sömu rökum taldi hún fráleitt að samþykkja tillögur um byggðina fyrir norðan Gránufélagshúsin og birti svo með því mynd af ellefu hæða byggingum sem löngu eru farnar af kortinu. En hvað sem því líður þá er afstaða hennar til svo hárra bygginga auðvitað góð og gild enda þótt allir séu ekki sammála henni. Það sem gerði mig venju fremur vankaðan var að þessi skoðun hennar á greinilega ekki við um uppbygginguna í miðbænum.

Þar hefur hún, ásamt öðrum í Akureyrarflokknum, lagt til að hækka byggðina all verulega frá gildandi skipulagi enda þótt það komi ekki til greina á Eyrinni eða í Innbænum. Alls ekki. Þetta þykir mér ekki lýsa mjög skýrrri sýn á grundvallaratriði í skipulagi. Þess í stað er hlaupið eftir þeim sem hæst galar innan eða utan bæjarstjórnar. Í seinni tíð hefur slíkur pólitískur hringlandaháttur verið kenndur við poppúlisma og ekki talið til fyrirmyndar. 

-Ragnar Sverrisson, kaupmaður


Athugasemdir

Nýjast