Útlit fyrir að velta Norðurskeljar í Hrísey tífaldist á milli ára

„Hjólin eru farin að snúast og margt spennandi að gerast," segir Víðir Björnsson hjá Norðurskel í Hrísey.  Sala á bláskel hefur stóraukist undanfarna mánuði, velta fyrirtækisins nú í apríl er nánast jafnmikil og hún var allt árið í fyrra.  „Við sjáum fram á að velta hjá okkur tífaldist á milli áranna 2009 og 2010," segir Víðir.   

Svo til öll framleiðsla Norðurskeljar, um 98%, er seld til útlanda, einkum Belgíu og norðurhluta Frakklands.  „Við erum með góðan viðskiptavin þar og höfum vart undan að framleiða til að anna eftirspurn á þessum svæðum," segir Víðir.  Aðilar í Bretlandi, Þýskalandi og víðar í Frakklandi hafa óskað eftir að kaupa bláskel frá fyrirtækinu, „en við önnum því miður ekki meiru, höfum ekki undan að framleiða upp í samninga," segir Víðir.

Um þessar mundir starfa 8-9 manns hjá Norðurskel og segir Víðir að ætlunin sé nú innan skamms að fjölga starfsfólki um helming.  Þá stendur einnig til að auka við tækjakost, en Norðurskel  er með einu vinnsluna í þessari atvinnugrein hér á landi.  „Við gætum selt mun meira en við gerum, við eigum vöruna til, en það strandar á mannskap og auknum tækjakosti.  Við höfum hug á að bæta þar úr á næstu vikum," segir Víðir.  Áhugi er fyrir því að fá tæki sem til þarf smíðuð hér á landi og er smiðja í Hafnarfirði í startholunum. Víðir segir mun hagkvæmara að hafa þann háttinn á en að flytja tæki frá útlöndum, t.d. Nýja-Sjálandi þar sem vinnsla á krækling á sér langa hefð.  „Það er dýrt og eins mjög erfitt og tímafrekt að fá varahluti, þannig að við erum að horfa til iðnaðarmanna hér heima, enda eru þeir fyllilega samkeppnisfærir á þessu sviði," segir Víðir.

Norðurskel verður 10 ára í byrjun maí og segir Víðir að lífið hafi ekki alltaf verið dans á rósum.  Það hafi kostað blóð, svita og tár að byggja það upp frá grunni og mörg mistökin gerð.  „En nú sjáum við fram á árangur og það er ánægjulegt," bætir hann við.  Aðalfundur félagsins var haldinn nú nýverið, en síðastliðið ár var fyrirtækinu erfitt, þörungaeitrun kom upp á liðnu sumri og datt framleiðsla niður í þrjá mánuði sem sett strik í reikninginn.  Á næstunni stendur til að setja niður um 40 til 50 tonn í Eskifirði, m.a. til að bregðast við ef eitrun kemur upp á ný í Eyjafirði.  „Það er gott að dreifa þessu um landið, það er mjög bagalegt að þurfa að stoppa vinnsluna til lengri tíma ef eitthvað óvænt kemur upp, eins og þessi eitrun í fyrra," segir Víðir.

Stærsti eigandi fyrirtækisins er Tækifæri ehf og segir Víðir að þó uppbygging hafi tekið langan tíma hafi forsvarsmenn sjóðsins haft óbilandi trú á að betur myndi ára í greininni, líkt og nú er komið á daginn.  „Við erum afar ánægðir að nú í næstu viku náum við þeim áfanga að velta okkar verður orðin meiri en hún var allt árið í fyrra," segir Víðir.

Nýjast