Útköllum hjá Slökkviliði Akureyrar fjölgaði á milli ára

Slökkvilið Akureyrar fór í 2.270 útköll á árinu 2010 og er það 9% aukning frá 2009. Dælubílar liðsins voru kallaðir 143 sinnum á árinu í ýmis verkefni en 21 sinni var um eld að ræða. Útköllum dælubíla hefur því fækkað um 10% frá árinu 2009.  

Sjúkrabílar liðsins voru kallaðir út 1.687 sinnum árið 2010 og er það um 10% fjölgun frá fyrra ári. Þar af var um að ræða 168 utanbæjarflutninga út fyrir starfssvæði liðsins. Sjúkraflug hefur aukist á milli ára og var farið í 440 sjúkraflug á árinu 2010 sem er 11% aukning frá árinu 2009.  Þar af voru 18 flug erlendis og þetta árið var eingöngu um að ræða flug til og frá Grænlandi.

Mikið var umleikis hjá liðinu í tengslum við gosið í Eyjafjallajökli en liðið var þá með aukinn mannskap og tæki á Akureyrarflugvelli í tengslum við millilandaflug.

Nýjast