Úthlutað úr Afreks- og styrktarsjóði Akureyrar í árlegu hófi

Hin árlega úthlutun úr Afreks- og styrktarsjóði Akureyrar fer fram í hófi sem haldið verður í Íþróttahöllinni í dag, fimmtudaginn 27. desember kl. 16:00. Öllum Akureyringum er unnið hafa til Íslandsmeistaratitils á árinu 2007 verður afhentur minnispeningur íþróttaráðs. Árangur akureyskra íþróttamanna var góður á árinu. Samkvæmt upplýsingum sem borist hafa til stjórnar sjóðsins hafa 195 Íslandsmeistaratitlar unnist á árinu og einnig voru margir Akureyringar valdir til leiks með landsliðum í hinum ýmsu íþróttagreinum. Það er von íþróttaráðs að þessir glæsilegu afreksmenn og þjálfarar þeirra sjái sér fært að koma til athafnarinnar. Góðar veitingar verða fram bornar í boði Akureyrarbæjar.

Nýjast