Útboð á göngu- og hjólabrú yfir Glerá

Tölvugerð mynd    Mynd akureyri.is
Tölvugerð mynd Mynd akureyri.is

Umhverfis- og mannvirkjasvið fyrir hönd Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í byggingu á nýrri steinsteyptri, eftirspenntri göngubrú yfir Glerá, um 50 metrum ofan við núverandi vegbrú á Hörgárbraut, stígagerð fyrir aðliggjandi stofnstígstengingu frá Skarðshlíð og að Borgarbraut ásamt gangbraut yfir Borgarbraut til móts við Glerártorg.

Útboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar frá og með miðvikudeginum 29. maí 2024.

Áhugasömum er boðið til kynningarfundar í Ráðhúsi Akureyrarbæjar 4. hæð þann 4. júní 2024 kl. 14:00

Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar eigi síðar en þann 5. júlí 2024 kl. 11:00 og verða tilboð opnuð á sama tíma að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.


Athugasemdir

Nýjast