Úrslitarimman í MIKASA- deild karla í blaki hefst í kvöld kl. 19:30 í KA- heimilinu en í ár berjast KA og HK um titillinn. Liðin hafa mæst fjórum sinnum í deildinni í vetur og staðan þar 2:2 og því má búast við hörku einvígi milli þessara liða um Íslandsmeistaratitilinn.
„HK geta verið skæðir og þetta er mun yngra lið en við erum með og ég á von á mjög jafnri rimmu,” segir Valur Traustason leikmaður KA.
HK- menn hafa spilað vel í vetur þrátt fyrir að enginn titill hafi runnið í þeirra hendur og eru fullir sjálfstrausts fyrir leikina. „Við mætum bara í þessa leiki eins og hverja aðra og það er alltaf gaman að spila gegn KA,” segir Brynjar Júlíus Pétursson fyrirliði HK.
Nánar í Vikudegi í dag.