Úrslitaleikur Íslands og Króatíu á heimsmeistaramóti U19 ára landsliða í handknattleik sem fram fer á Túnis annað kvöld verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV.
Akureyringurinn Oddur Gretarsson hefur leikið stórt hlutverk með íslenska liðinu á mótinu en hann skoraði sjö mörk í undanúrslitaleiknum gegn Túnis í gær og var næstmarkahæstur í íslenska liðinu.
Útsendingin hefst klukkan 19.30.