11. september, 2009 - 10:36
Fréttir
Urðun verður hætt á Glerárdal innan tveggja ára, starfsleyfi urðunarstaðarins þar rann út 1. júlí í sumar, en un
Umhverfisstofun mun gefa út tímabundið starfsleyfi til tveggja ára. Eiður Guðmundsson framkvæmdastjóri hjá Flokkun Eyjafjarðar segir að
félagið hafi að undanförnu unnið að því að finna varanlega lausn til að farga þeim úrgangi sem ekki er mögulegt að
endurvinna.
„Það eru ýmsir möguleikar til skoðunar," segir hann . „Við höfum enn ekki valið eina lausn umfram aðra og engum möguleikum
hafnað." Meðal þess sem til skoðunar er á þessum vettvangi er samstarf við Skagfirðinga og Húnvetninga ásamt fleiri lausnum, en Eiður
segir að mál muni skýrast innan tíðar.