Uppbygging færni- og hermiseturs stóreflir kennslu í heilbrigðisvísindum við Háskólann á Akureyri

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Eyjólfur Guðmundsson við undirritunina  Myndir: aðsendar
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Eyjólfur Guðmundsson við undirritunina Myndir: aðsendar

 

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri, hafa undirritað samkomulag um fjárveitingu til að hefja undirbúning og uppbyggingu húsnæðis sem hýsir færni- og hermisetur við Háskólann á Akureyri.

Fjárveitingin er 200 m.kr. og styður hún við markmið skólans um stúdentafjölgun og sérstaklega stúdenta í hjúkrunarfræði. Vonir standa til að nýtt færni- og hermisetur taki til starfa haustið 2026.

,,Sú ákvörðun að hefja uppbyggingu fyrir nýtt færni- og hermisetur við Háskólann á Akureyri eru mikil tímamót og forsenda þess að skólinn geti fjölgað nemendum í heilbrigðisvísindum á Íslandi,” segir Áslaug Arna um undirritun samkomulagsins við HA.

Færni- og hermikennsla felst í að herma eftir raunverulegum aðstæðum, aðgerðum eða inngripum í öruggu umhverfi. Það er gert með leiðbeinanda, án þess að heilsu sjúklings sé stefnt í hættu og með aðstoð meðal annars tæknibúnaðar og leiknum sjúklingum. Áslaug Arna segir að ein helsta hindrunin í námi í heilbrigðisvísindum hafi verið klíníska námið, þ.e. starfsnámið á sjúkrahúsunum. ,,Því miður er það svo að sjúkrahúsin hafa hvorki aðstöðu né mannskap til að taka á móti fleiri nemendum í heilbrigðisvísindum. Færni- og hermisetrinu er ætlað að leysa þann vanda og við bindum einnig vonir við að það efli símenntun heilbrigðisstétta og ýti þannig undir innleiðingu nýsköpunar og tækninýjunga í heilbrigðisþjónustu.”

Öflugt færni- og hermisetur forsenda fjölgunar stúdenta í heilbrigðisvísindum

Nýtt færni- og hermisetur eykur gæði og tækifæri til heilbrigðisnáms á landsbyggðinni. Með stækkun á kennsluhúsnæði gefst færi á að taka við fleiri nemendum og aldrei hafa fleiri stúdentar stundað staðnám við Háskólann á Akureyri. Að sögn Eyjólfs Guðmundssonar, rektors, mun færni-og hermisetur koma til móts við þá fjölgun sem nú þegar er orðin og gefa tækifæri til frekari vaxtar.

„Þegar færni og hermi setrið er komið í notkun gefur það okkur möguleika á að fjölga stúdentum enn frekar, jafnvel úr þeim ríflega 300 sem nú stunda nám í hjúkrunarfræði við HA upp í allt að 400,“ segir Sigríður Sía Jónsdóttir deildarforseti, Hjúkrunarfræðideildar HA.

Uppbygging færni- og hermiseturs fellur undir forgangsaðgerðir í þágu heilbrigðismenntunar sem háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og heilbrigðisráðherra lögðu sameiginlega fram til að mæta aukinni mannaflaþörf í heilbrigðiskerfinu og efla heilbrigðismenntun. Í samningi um verkefnið kemur fram að mikilvægt sé að bæði í Reykjavík og á Akureyri sé til staðar grunnbúnaður fyrir færni- og hermikennslu helstu heilbrigðisstétta. Þá er áhersla lögð á árangursríka miðlun þekkingar með nýstárlegum og skilvirkum kennsluaðferðum.

 Stúdentar í hjúkrunarfræði

Athugasemdir

Nýjast