Unnið að snjómokstri á Akureyri

Þungfært á götum Akureyrar. Ljósmynd/Þorgeir Baldursson.
Þungfært á götum Akureyrar. Ljósmynd/Þorgeir Baldursson.

Unnið er að snjómokstri af fullum krafti á Akureyri en mikið fannfergi er í bænum og víða má sjá bíla sitja fasta. Fram kemur á vef Akureyrarbæjar að samtals eru 33 tæki í notkun og er unnið í öllum hverfum bæjarins.

Snjó hefur kyngt niður síðustu daga samfara vindi og skafrenningi á köflum sem hefur gert snjómokstur krefjandi. Áherslan hefur verið lögð á fyrsta og annan forgang samkvæmt skipulagi vetrarþjónustu, það er að halda helstu leiðum, gangstígum, stofnbrautum og tengibrautum opnum. 

Snjómokstur í íbúðargötum er að hefjast af fullum krafti í dag, mánudag Allnokkrar götur eru ill- eða ófærar þar sem snjór hefur lítið þjappast, en vonast er til þess að eftir daginn í dag komist flestir um. Áfram er lögð mikil áhersla á að hreinsa gangstíga og halda þeim í góðu standi. Búast má við að það taki nokkra daga að hreinsa bæinn að fullu, segir á vef bæjarins.

 


Athugasemdir

Nýjast