Á fundi stjórnar Akureyrarstofu nýlega voru lögð fram til umræðu drög að endurnýjuðum samningi um samstarf ríkis og Akureyrarbæjar í menningarmálum, sem gert er ráð fyrir að gildi til næstu þriggja ára. Stjórn Akureyrarstofu fagnar því að nú sé lagt upp með að gera samning til þriggja ára en gerir athugasemdir við fjárhæðir í þeim drögum sem fyrir liggja. Framkvæmdastjóra Akureyrarstofu og formanni stjórnar var falið að koma þeim athugasemdum á framfæri við mennta- og menningarmálaráðuneytið og halda áfram viðræðum. Að öðru leyti telur stjórnin mikilvægt að ljúka samningum sem allra fyrst.
Á fundinum var einnig rætt um áherslur í nýjum samningi við Sinfóníuhljómsveit Norðurlands en nú er stefnt að því að gera aftur þriggja ára samning við hljómsveitina. Framkvæmdastjóra Akureyrarstofu og formanni stjórnar var falið að halda áfram samningaviðræðum við fulltrúa SN með það að markmiði að samningum ljúki sem allra fyrst.
Í vinnu við undirbúning fyrir hátíðahöld um verslunarmannahelgar síðustu ára hefur komið upp sú hugmynd að Akureyrarbær og félagið Vinir Akureyrar geri með sér samning um framkvæmd hátíðahaldanna 2-3 ár fram í tímann. Í tengslum við undirbúning fyrir hátíðina á næsta ári var ákveðið að hefja vinna við samningsdrög. Stjórn Akureyrarstofu felur starfsmönnum Akureyrarstofu að vinna áfram að samningnum. Þá samþykkti stjórn Akureyrarstofu að styrkja Þrettándagleði Þórs um 150 þúsund krónur eins og undanfarin ár.