Flutningabíllinn var með tengivagn og leikur grunur á að hann hafi mögulega farið af stað. Bíllinn liggur nú um 50 metra frá veginum, efst
austan megin í Víkurskarði. Ekki er vitað hvort hann er í ökufæru ástandi en stefnt er að því að ná í bílinn
í dag, segir á visir.is.
Þá hafnaði fólksbíll utan vegar á Svalbarðsströnd gærkvöld og valt tvær veltur. Tvær stúlkur, sem voru farþegar í bílnum, voru fluttar á sjúkrahús til skoðunar. Ekki er vitað um meiðsli þeirra, en bíllinn er lítið skemmdur. Orsök slyssins er ókunn en mikil hálka er á veginum á þessum slóðum og veður slæmt, segir á ruv.is.