Um 2.500 manns hafa bókað sig í sýnatöku

Sýnatökurnar fara fram við Glerártorg.
Sýnatökurnar fara fram við Glerártorg.

Mikil ásókn er í sýnatöku vegna Covid-19 veirunnar á Læknastofum Akureyrar sem hefja skimanir í dag í samstarfi við Íslenska erfðagreiningu. Nú þegar er allt orðið fullt en Læknastofurnar munu taka 300 manns dag í vikunni; mánudag, þriðjudag og miðvikudag.

Þá bættust við fjórir dagar í vikunni eftir páska sem fylltust á korteri. Því hafa alls um 2.500 manns bókað sig í sýnatöku.

Ingibjörg Isaksen, framkvæmdastjóri Læknastofu Akureyrar, segir í samtali við Vikudag að ánægjulegt sé að sjá hversu margir vilja nýta sér þessa þjónustu. „Það var augljóslega mikil þörf á þessu hér á svæðinu,“ segir Ingibjörg.

Hún hvetur fólk til að fylgjast með bókunarsíðunni en hana má fá finna með því að smella hér. Sýnatökur verða virka daga frá kl. 9-16 og fara fram við Glerártorg, að norðanverðu (bak við Bakaríð við brúna). Fólk leggur bílnum sínum fyrir framan húsið í merkt bílastæði (merkt með keilum og miða) og gengur svo upp rampinn og fer inn til að láta taka sýni.

Íslensk erfðagreining útvegar pinnana ásamt tilheyrandi tölvubúnaði og Embætti landlæknis útvegar hlífðarbúnað. Ekki hefur verið ákveðið hversu lengi Læknastofurnar muni bjóða upp á í sýnatöku.

 


Athugasemdir

Nýjast