„Við vitum dæmi þess að fyrirtæki hafi selt tífalt meira magn en á síðustu sýningu fyrir tveimur árum og almennt voru sýnendur mjög ánægðir með viðtökur gesta," segir Ingvar Már Gíslason í sýningarstjórn. „Markmiðið með sýningunni var að vekja athygli á því hve matvælaframleiðsla er öflug á Norðurlandi og ekki aðeins framleiðsla heldur ekki síður veitingastarfsemi og margir aðrir þættir sem snerta matvælageirann á Norðurlandi. Við færðum sýninguna í mun stærra húsnæði en hún var áður í þannig að mun rýmra var um gesti og sýnendur. Í heild tel ég að þau markmið sem við lögðum upp með hafi gengið eftir," segir Ingvar Már.
Fjölmargt áhugavert var á dagskrá sýningarinnar. Á laugardag var málþing um íslenskan mat, sömuleiðis matreiðslukeppni þjóðþekktra þar sem Sigrún Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi á Akureyri sigraði. Í þeirri keppni glímdu fjórir keppendur við eldamennsku á saltfiski en fyrirfram vissu þau ekki hvert hráefnið yrði. Aðrir keppendur voru Kristján Þór Júlíusson, alþingismaður, María Sigurðardóttir, leikhússtjóri og Svavar Alfreð Jónsson, sóknarprestur. Sömuleiðis kepptu fulltrúar matarfélaganna þriggja, þ.e. Matar úr Eyjafirði, Matarkistunnar Skagafjarðar og Þingeyska matarbúrsins í fiskisúpugerð. Í þeirri keppni sigruðu Sólveig Pétursdóttir og Jóna Matthíasdóttir fyrir Þingeyska matarbúrið. Þingeyingurinn Anton Freyr Birgisson reyndist gera besta borgarann á Norðurlandi í ár en í þeirri keppni voru 10 keppendur.
Loks sýndu kjötiðnaðarmenn vinnslu á tveimur lambsskrokkum og voru afurðirnar boðnar upp. Á uppboðinu voru einnig seldar matar- og gjafakörfur, allt til stuðnings Hetjunum - félagi langveikra barna á Norðurlandi. Alls söfnuðust 167 þúsund krónur fyrir félagið.
Á sýningunni voru frumkvöðlaverðlaun Matar úr Eyjafirði veitt í þriðja sinn. Þau hlaut fyrirtækið Bruggsmiðjan á Árskógssandi fyrir kraftmikla uppbyggingu í framleiðslu, góðan markaðsárangur og að halda merki íslenskrar framleiðslu á lofti. Sýningin MATUR-INN er haldin á tveggja ára fresti og er stefnt að næstu sýningu haustið 2011.