Um 1000 manns á vímulausri árshátíð MA í Höllinni

Árshátíð Menntaskólans á Akureyri fer fram í Íþróttahöllinni á Akureyri á morgun, föstudaginn 27. nóvember. Hátíðin verður glæsileg en allur undirbúningur hennar er í höndum nemenda sjálfra og tekur nokkrar vikur, þegar allt er talið. Tugir nemenda vinna að skreytingum og margir hópar nemenda vinna að því að semja og æfa alls kyns skemmtiefni, hljóðfæraleik, dans, söng og leik.  

Aðrir hópar sjá um að skipuleggja veislusalinn í höllinni, leggja á borð og skreyta, tæknimenn sjá til þess að allir fái notið þess sem í boði verður. Öll þessi störf eru undir regnhlíf stjórnar Hugins, skólafélags MA. Formaður Hugins, Inspector Scholae, er Axel Ingi Árnason.

Hátt í þúsund manns, nemendur, kennarar og starfsfólk, munu mæta í hátíðarbúningi í Höllina og njóta kvöldsins saman. Veitingahúsið Bautinn sér um matinn, en nemendur sjá um að þjóna til borðs, leika tónlist undir borðhaldi og flytja skemmtidagskrá. Heiðursgestur kvöldsins verður Páll Skúlason, heimspekingur og fyrrverandi rektor Háskóla Íslands. Kvöldinu lýkur svo með dansleik en þar leikur hljómsveitin Sálin hans Jóns míns fyrir dansi í aðalsal, Þuríður og hásetarnir leika fyrir dansi á efri hæðinni.

Árshátíð MA er stærsta vímulausa hátíð sem haldin er árlega á Íslandi. Hugtakið vímulaus hátíð þýðir í Menntaskólanum á Akureyri að þátttakendur hvorki neyta áfengis eða annarra vímugjafa á hátíðinni né koma þangað eftir að hafa neytt þeirra annars staðar. Nemendur MA telja það forréttindi að fá tækifæri til að njóta vímulausrar stórhátíðar þegar eðlilegt er talið að fólk á þessum aldri skemmti sér með öðru móti.

Nýjast