Tvö ný smáhýsi í Dvergholti afhent

Nyju smáhýsin í Dvergholti.  Mynd akureyri.is
Nyju smáhýsin í Dvergholti. Mynd akureyri.is

Tvö ný smáhýsi fyrir fólk með fjölþættan vanda voru afhent sveitarfélaginu fimmtudaginn 30. nóvember. Fyrir voru tvö smáhýsi á lóðinni við Dvergholt 2 en þau hafa verið í notkun síðan 2020.

Húsin voru byggð af SS Byggi og stóð til að afhenda þau í lok febrúar 2024 en verkinu var lokið fyrr en áætlanir gerðu ráð fyrir og því voru þau afhent núna, þremur mánuðum á undan áætlun.

Smáhýsin tvö eru vönduð tveggja herbergja hús, 55 m² að stærð, byggð úr krosslímdum timbureiningum og klædd að utan með álklæðningum. Við öll húsin er steypt verönd. 
Frá þessu var sagt á akureyri.is


Athugasemdir

Nýjast