Tveir stærstu flokkarnir í Norðurþingi hefja meirihlutaviðræður

Fulltrúar B-lista Framsóknarflokks og félagshyggju og D-lista Sjálfstæðisflokks hafa ákveðið að taka upp formlegar viðræður um myndun meirihluta í sveitarstjórn Norðurþings.

Í nýafstöðnum sveotarstjórnarkosningum féll B-listinn 31,6% atkvæða og þrjá menn kjörna og D-listinn 23,9% og tvo menn kjörna. Það eru níu fulltrúar í sveitarstjórn Norðurþings.

Hjálmar Bogi Hafliðason, oddviti B-lista og Hafrún Olgeirsdóttir, oddviti D-lista leiða umræðurnar.


Athugasemdir

Nýjast