Magni er einu stigi frá fallsæti eftir tvo tapleiki í röð í 2. deild karla í knattspyrnu. Magni beið ósigur gegn Tindastóli sl. fimmtudag þar sem lokatölur á Sauðárkróksvelli urðu 2-0 sigur Tindastóls.
Magni mátti svo sætta sig við 0-3 tap á heimavelli gegn Gróttu sl. þriðjudagskvöld. Eftir 11 umferðir er Magni í 10. sæti deildarinnar með tíu stig.