16. mars, 2008 - 20:22
Fréttir
Sindri Sindrason, stjórnarformaður Eimskipafélags Íslands, og Gunnar Þór Gíslason, framkvæmdastjóri Sundagarða, voru kjörnir
nýir inn í stjórn Saga Capital Fjárfestingarbanka á aðalfundi bankans sem haldinn var í gær. Þrír stjórnarmenn sitja
áfram, þeir Halldór Jóhannsson, sitjandi stjórnarformaður, Jóhann Antonsson og Róbert Melax. Þorvaldur Lúðvík
Sigurjónsson, forstjóri Saga Capital, skýrði hluthöfum bankans frá því að sótt hafi verið um viðskiptabankaleyfi til
Fjármálaeftirlitsins, auk þess sem bankinn sé búinn að semja við Seðlabanka Íslands um aðgang að stórgreiðslukerfi hans og
semja um aðild að Reiknistofu bankanna.
„Saga Capital verður áfram fjárfestingarbanki en viðskiptabankaleyfið gerir bankanum kleift að vera sveigjanlegri og koma til móts við kröfur
þeirra viðskiptavina sem vilja opna innlánsreikninga hjá bankanum," sagði Þorvaldur Lúðvík. „Bankinn hefur vaxið hratt frá
því hann tók formlega til starfa um mitt síðasta ár og situr nú í fjórða sæti, á eftir stóru
viðskiptabönkunum þremur, í markaðshlutdeild í Kauphöll Íslands, það sem af er þessu ári. Viðskiptabankaleyfi er
rökrétt framhald af þessari þróun." Í ávarpi sínu á aðalfundinum skýrði Þorvaldur Lúðvík frá
því að eiginfjárhlutfall bankans stæði nú í tæpum 54%, en lögbundið lágmark er 8%. Þetta góða
eiginfjárhlutfall Saga Capital þýddi að bankinn væri ekki með stóran efnahagsreikning til að fjármagna í þeirri lausafjárkreppu
sem ríkir og á þeim óhagstæðu lánakjörum sem bjóðast.
„Fjárhagsstaða bankans er sterk og efnahagsreikningur hans er lítill og sveigjanlegur. Hvort tveggja er afar mikilvægt við núverandi aðstæður
á mörkuðum. Að auki glímir bankinn ekki við neinn fortíðarvanda og hluthafar hans eru sterkir og traustir. Saga Capital er því
gríðarlega vel í stakk búinn til að taka þátt í þeirri gerjun sem framundan er í fjármálageiranum og er
reiðubúinn til að nýta sóknarfærin sem skapast á næstu misserum," sagði Þorvaldur Lúðvík. Halldór Jóhannsson,
stjórnarformaður Saga Capital, fjallaði í ávarpi sínu meðal annars um núverandi rekstrarumhverfi fjármálafyrirtækja og sagði
líklegt að til sameininga kæmi á næstunni. „Frekari samþjöppun á innanlandsmarkaði styrkir að mínu mati samkeppnishæfi Saga
Capital. Ég tel að það verði alltaf þörf og rými fyrir minni, sveigjanlegri og sérhæfðari fjárfestingarbanka. Grundvallarforsendur
fyrir stofnun Saga Capital hafa ekkert breyst," sagði Halldór. Þá ræddi Halldór um stöðu Fjármálaeftirlitsins og sagði að engum
dyldist að mikill tími færi í að fá úrskurði um einföld mál enda augljóst að stofnunin væri undirmönnuð.
Halldór sagði að í því ljósi vekti það undrun hversu illa gengi að færa FME aukið rekstrarfé.
Fjármálaeftirlitið væri fjármagnað af þeim sem stofnunin hefði eftirlit með og atvinnugreinin ætti að leggja metnað sinn í að
tryggja FME aukið rekstrarfé, þannig að hægt væri að stórauka afkastagetu stofnunarinnar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu
frá bankanum.