Tveir aðilar buðu í rekstur á aðstöðu í nýju þjónustuhúsi

Hafnasamlag Norðurlands bs. auglýsti á dögunum eftir tilboðum í rekstur á aðstöðu í nýju þjónustuhúsi vestan við Oddeyrarbryggju á Akureyri. Tvö tilboð bárust og voru þau opnuð í morgun. Iceland Travel Mart ehf. bauð 270.000.- krónur pr. mánuð og Hóras ehf. bauð 304.000.- krónur pr. mánuð. Stjórn Hafnasamlags Norðurlands hefur samþykkt að ganga til samninga við Horas ehf.  

Eins og fram hefur komið verður reist rúmlega 160 fermetra þjónustuhús á hafnarsvæðinu, en í því er ætlunin að verði móttökuaðstaða fyrir farþega skemmtiferðaskipa. Ráðgert er að hefja framkvæmdir nú  í haust. Í þjónustuhúsinu verða snyrtingar, sími og netaðstaða, auk þess sem rými verður fyrir sölubása með íslenskt handverk svo eitthvað sé nefnt.  Þá verða margskonar bæklingar um land og þjóð til reiðu í húsinu og vísir að upplýsingamiðstöð. Iðnaðaráðuneytið, sem nú fer með ferðamál, samþykkti að veita 11 milljóna króna styrk í þessa framkvæmd.

Nýjast