18. apríl, 2017 - 12:29
Fréttir
Lögreglustöðin á Akureyri.
Lögreglan á Akureyri hefur sleppt tveimur mönnum úr haldi, sem voru handteknir vegna
hnífsstunguárásar í Kjarnaskógi á föstudaginn langa. Þetta kemur fram í frétt á
Rúv. Þar segir að alls hafi fimm verið handteknir vegna málsins, en tveir karlar og ein kona verða í gæsluvarðhaldi fram á föstudag hið minnsta. Einn þeirra er árásarmaðurinn, sem var handtekinn rétt við Hrísalund í kjölfar ábendingar.