Tvær nýjar gönguleiðir með bekkjum vígðar á Akureyri

Þann 8. september er alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar. Á Akureyri verða af því tilefni vígðar tvær gönguleiðir með bekkjum. Gönguleiðirnar eru sérstaklega hannaðar með þarfir þeirra sem lakir eru til gangs, í huga. Önnur er út frá Víðilundi, hin út frá Lindarsíðu.  

Vígsla almenningsbekkjanna fer fram við göngustíginn sunnan við fjölbýlishúsið Víðilund 20, miðvikudaginn 8. september nk. kl. 14.00. Bekkirnir hafa verið gefnir af fyrirtækjum bæjarins, fyrir tilstilli Norðurlandsdeildar Félags íslenskra sjúkraþjálfara og Félags eldri borgara, Akureyri.

Félag Íslenskra Sjúkraþjálfara (FÍSÞ) verður 70 ára á árinu 2010. Í tilefni þess hafa sjúkraþjálfarar farið af stað með samfélagsverkefni, sem hvatningu til aukinnar hreyfingar, til hagsbóta fyrir almenning. Eitt þeirra er verkefnið „Að brúka bekki", framkvæmt í samvinnu við Félög eldri borgara.

Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt fram á mikilvægi þess að eldra fólk stundi hæfilega hreyfingu sér til heilsubótar. Niðurstöður þessara rannsókna sýna að með því að stunda reglubundna hreyfingu helst eldra fólk hressara og heilbrigðara lengur, er lengur sjálfbjarga og getur dvalið lengur heima. Það er því allt til þess vinnandi að hvetja eldra fólk til að hreyfa sig reglulega, m.a. með því að ganga úti reglulega.

Tvær nýjar, íslenskar rannsóknir, báðar framkvæmdar af meistaranemum í heilbrigðisvísindum við HA, hafa leitt í ljós að eitt það helsta sem hindrar eldra fólk til göngu sér til heilsubótar, er skortur á bekkjum 1,2. Hálka er önnur títtnefnd hindrun.

Því hafa verið kortlagðar, í samvinnu við Félag eldri borgara á Akureyri, tvær gönguleiðir, sem henta þeim sem lakir eru til gangs. Tryggt er að ekki eru meira en 250 m á milli bekkja, sem er forsenda þess að fjölmargir treysti sér til að ganga úti. Ráðgert er að fjölga síðan leiðum, þannig að í bænum verði þegar upp verður staðið, fjórar gönguleiðir af þessu tagi í mismunandi hverfum. Fyrstu gönguleiðirnar eru út frá Víðilundi og Lindasíðu, en síðar koma leiðir út frá Hlíð og frá norðurenda Mýrarvegar.

Nýjast