Í tilefni þess að 100 ár voru í gær liðin frá fæðingu John F. Kennedy bandaríkjaforseta, stóð Könnunarsafnið á Húsavík fyrir flutningi af tveimur hljóðritunum af tveimur frægum ræðum forsetans. Þar talaði hann fyrir þeirri sýn sinni að senda menn til tunglsins. Hljóðritanirnar voru fluttar í sýningu safnsins um geimferðir frá 10.30 til 14.00 en klukkan 12.00 var leiðsögn um safnið þar sem fjallað var um stjórnmálastöðu og þær aðstæður sem leiddu til þessarar sannfæringar Kennedy.
John F. Kennedy var myrtur í Dallas þann 22. nóvember 1963. Markmið hans náðist þann 20. júlí 1969 þegar Neil Armstrong steig fyrstur manna fæti á tunglið. Þjálfaði Armstrong hér á landi fyrir leiðangurinn ásamt á fjórða tug annarra geimfaraefna árin 1965 og 1967. Alls gengu 12 menn á tunglinu á árunum 1969 til 1972, en ekki hefur verið farið þangað síðan.
Kennedy flutti fyrri ræðuna þann 25. maí 1961, á sameiginlegum fundi beggja deilda Bandaríkjaþings, en aðeins rúmum mánuði áður hafði Yuri Gagarinn unnið það afrek að verða fyrstur manna til að ferðast út í geim. Hafði það afrek Sovétríkjanna mikil áhrif á þróun geimferðaáætlunar Bandaríkjanna. Síðari ræðuna flutti hann fyrir fullum leikvangi af fólki við Rice háskólann í Texas.