14. júlí, 2009 - 13:30
Fréttir
Á fundi framkvæmdaráðs Akureyrar nýlega var tekið fyrir erindi frá Þórhildi Helgu Þorleifsdóttur skólastjóra
Lundarskóla þar sem starfsfólk Lundarskóla beinir þeim tilmælum til ráðamanna Akureyrarbæjar að leita leiða til að tryggja
örugga leið gangandi og hjólandi vegfarenda undir eða yfir Miðhúsabrautina norðvestan við Bónus áleiðis á Golfvallarveg og inn á
göngustíg austan við golfvöllinn.
Nemendur og starfsfólk Lundarskóla fengu á vordögum úthlutað reit í Naustaborgum sem nýttur verður sem útiskólastofa á
næstu árum.