Trúi að Fjölnir geri okkur greiða

Lokaumferð Íslandsmótsins í 1. deild karla í knattspyrnu fer fram í dag og hefjast allir leikirnir kl. 14:00. KA sækir ÍA heim en mikil spenna verður á Þórsvelli þar sem heimamenn fá Fjarðabyggð í heimsókn. Víkingur R. tryggði sér þátttökurétt í efstu deild með sigri gegn KA í síðustu umferð en baráttan um hitt lausa sætið stendur á milli Leiknis R. og Þórs. Þar stendur Leiknir betur að vígi en liðið er í öðru sæti deildarinnar með 43 stig en Þór hefur 40 stig í þriðja sæti. Þórsarar þurfa að vinna sinn leik í dag og treysta á að Fjölnir vinni Leikni á Leiknisvelli til þess að tryggja sér annað sætið í deildinni.

 

Fari úrslitin á þann veg verða Þór og Leiknir jöfn að stigum eftir lokaumferðina, en þar sem Þórsarar hafa mun betri markatölu en Leiknismenn myndi það að öllum líkindum fleyta Þór í efstu deild. Vikudagur heyrði hljóðið í Hreini Hringssyni, aðstoðarþjálfara Þórs, fyrir leikinn mikilvæga gegn Fjarðabyggð.

 

 „Auðvitað hefði verið rosalega gott að fara í leikinn vitandi það að þurfa bara að klára sitt. Það þýðir hins vegar ekkert að vera velta sér upp úr því og hugsa endalaust ef þetta og ef hitt. Það er ekkert svoleiðis í fótbolta. Þetta snýst um stigasöfnun og maður situr uppi með það sem maður afrekar og maður verður að taka því,” segir Hreinn. Þökk sé Fjarðabyggð er ennþá lífsmark með Þór í baráttunni fyrir lokaumferðina, þar sem Fjarðabyggð gerði 1:1 jafntefli við Leikni í síðustu umferð með jöfnunarmarki á lokamínútunni. Á sama tíma tapaði Þór 2:3 gegn HK og því hefðu Þórsarar verið úr leik í baráttunni um sæti í efstu deild hefði ekki komið til jöfnunarmarks Fjarðabyggðar gegn Leiknismönnum.

 

 „Okkur þykir rosalega vænt um Fjarðabyggð en það er vonandi að við náum því út úr hausnum á okkur fyrir leikinn í dag,” segir Hreinn í léttum tón. „Þetta verður bara mjög spennandi og við höfum alveg fulla trú á því að þetta sé ennþá möguleiki. Fjölnismenn hafa verið góðir við okkur í gegnum tíðina og ef við klárum okkar leik sem er númer eitt tvö og þrjú að þá trúi ég að Fjölnir geri okkur smá greiða,” segir Hreinn.

 

Hann segir stemmninguna góða fyrir leikinn gegn Fjarðabyggð og að leikmenn séu vel einbeittir fyrir leikinn. „Það verður ekkert mál að gíra menn upp fyrir leikinn og þótt menn séu svekktir eftir síðasta leik að þá vita þeir hvað er í húfi í dag. Við verðum að klára þennan leik og sjá svo til hvað það gefur okkur. Hvort það verði góðar stundir eða smá svekkelsi,” segir Hreinn Hringsson.

Nýjast